Notkunarskilmálar, friðhelgisstefna og notkun á vefkökum

Velkomin(n) á vefinn miracle.is. Vefnum er ætlað að veita notendum aðgang að upplýsingum um vörur og þjónustu Miracle ehf.

NOTKUNARSKILMÁLAR

Samþykki þessarra notkunarskilmála er forsenda notkunar á vefnum miracle.is. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Heimilt er að hlaða niður efni vefsins til skoðunar sé það gert til einkanota en ekki til frekari vinnslu. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir og myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti. Upplýsingar á vefnum eru birtar án skuldbindinga og með fyrirvara um villur.

Við notkun á vefnum er hugsanlega spurt um persónulegar upplýsingar, t.d. við sendingu fyrirspurna. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu viðtakanda stendur. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar. Vefurinn notar fótspor eða vefkökur (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu. Með notkun vefsins miracle.is samþykkir notandi þessa notkunarskilmála.

Upplýsingar á þessum vef eru samkvæmt okkar bestu vitund á hverjum tíma. Þá getum við ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar. Upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum geta breytast án fyrirvara.

Við berum ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á þessum vef né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. Þá berum við ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn um skemmri eða lengri tíma.

Við eigum höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á þessum vef, nema annað sé tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki okkar þarf til að safna, vinna með, endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis upplýsingarnar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að safna, vinna með, endurbirta þær, afrita eða dreifa þeim. Notendum vefsins er þó heimilt að vista þær til sinna einkanota. Vélræn vinnsla, öflun eða skoðun gagnanna af forritum hvers konar er óheimil.

Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.

FRIÐHELGISSTEFNA

Samþykki notkunarskilmála okkar (sem lesa má hér á undan) er forsenda notkunar á þessum vef. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor eða vefkökur (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu. Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur meðal annars veitt heimild til þess að safna og greina umræddar upplýsingar. Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig er hægt að aðlaga vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda flestra vafra.

Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum. Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustu okkar. Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi.

NOTKUN Á VEFKÖKUM (COOKIES)

Vefkökur eru smáar textaskrár sem greina heimsóknir á vefsíður. Vefkökurnar eru notaðar í þeim tilgangi að bæta virkni og upplifun þeirra sem heimsækja vefsíðuna.

Vefkökur frá fyrsta aðila (e. first-party cookies) koma frá léninu miracle.is, á meðan vefkökur frá þriðja aðila (e. third-party cookies) eru vefkökur sem koma frá öðrum lénum. Vefsíðan miracle.is notar þær vefkökur frá fyrsta aðila sem nauðsynlegar eru fyrir virkni vefsins.

Þá er ein vefkaka frá þriðja aðila, Google, notuð í þágu vefgreiningar en þær upplýsingar eru nafnlausar.Notkun á vefkökum fer fram í þágu lögmætra hagsmuna framboðsins til að tryggja virkni vefs og bæta upplifun notenda. Hægt er að andmæla notkun þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti vefkökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim.

REKSTRARAÐILI

Miracle ehf.
Hús verslunarinnar, 7. hæð
Kringlan 7
103 Reykjavík
Kt. 471003-2980
info@miracle.is